Íslenska beyglan er komin í verslanir og við hjá Myllunni höldum áfram með hugmyndabanka íslensku beyglunnar, því það jafnast fátt á við nýjar og einfaldar hugmyndir að bragðgóðum beyglumáltíðum. Við höfum nú þegar komið fram með uppskriftir fyrir litla fólkið á heimilinu og yngri kynslóðina, en að þessu sinni hugum við að föstudagskvöldinu.
Föstudagskvöld eru oft róleg og kærkomin samverustund. Vinnu- og skólavikan er á enda og kærkomið helgarfrí er í vændum. Við viljum því bjóða upp á hugmyndir að þriggja rétta beyglumáltíð sem hentar öllum.
Samsölu beyglurnar frá Myllunni eru fyrir margra hluta sakir þægilegar þar sem það er hægt að eiga þær í frysti og grípa til þeirra og leyfa einfaldleikanum í eldamennskunni að ráða för. Eitt sem við viljum benda á þegar er verið að bjóða upp á beyglur er að ekki nota beitt áhald til að aðskilja helminga beyglunnar. Best er að þíða beygluna við stofuhita í 20 til 30 mínútur eða lengur áður en helmingar eru aðskildir og beyglan ristuð, það er einnig hægt að setja beygluna í örbylgjuofn á affrystistillingu í u.þ.b. 20 sekúndur (misjafnt eftir ofnum).
Hugmynd fyrir beyglu með jalapeno og osti
Svepperóni beygla
- 1 beygla með jalapeno og osti
- 6 matskeiðar pizzusósa
- 20 pepperóní sneiðar
- 5 sveppir
- Rifinn ostur
- Óreganó krydd
Aðferð:
- Stillið ofninn á 200 gráður (blástursofn)
- Takið beygluna varlega í sundur og smyrjið báða beygluhelmingana með pizzusósunni
- Raðið pepperóní sneiðunum á báða beygluhelmingana
- Skerið niður sveppina í sneiðar og dreifið þeim á báða beygluhelmingana
- Dreifið ostinum yfir báða beygluhelmingana
- Setjið báða beygluhelmingana á smjörpappír og bakið í ofninum í u.þ.b. 15 mínútur
- Takið beygluhelmingana út þegar þeir eru orðnir tilbúnir og stráið óreganóinu yfir
Hugmynd fyrir beyglu með hörfræjum, sesam og birki
Hvítlauksbitar
- 1 beygla með hörfræjum, sesam og birki
- 4 matskeiðar íslenskt smjör
- 2 marin hvítlauksrif
- ½ teskeið sjávarsalt
- 1 matskeið steinselja smátt söxuð
- Parmesanostur (eða hvaða ostur sem hentar hverju sinni)
Aðferð:
- Stillið ofninn á 200 gráður (blástursofn)
- Blandið saman smjörinu, hvítlauknum, sjávarsaltinu og steinseljunni og leggið til hliðar
- Takið beygluna varlega í sundur og skerið niður hvern beygluhelming í fjóra bita
- Smyrjið bitana með smjörinu (hliðarnar líka) og stráið parmesanostinum yfir
- Leggið bitana á smjörpappír og bakið í ofninum í u.þ.b. 10 mínútur
- Þegar bitarnir eru tilbúnir eru þeir teknir út og bornir fram
Hugmynd fyrir fína beyglu
Vöfflubeygla
- 1 fín beygla
- 1 matskeið íslenskt smjör
- ½ askja jarðarber
- ½ askja bláber
- Síróp (magn fer eftir smekk)
Aðferð:
- Takið fram vöfflujárn og hitið það upp
- Takið beygluna varlega í sundur
- Smyrjið báðar hliðar á beyglunni með smjörinu
- Skerið ávextina í litla bita og setjið þá til hliðar
- Setjið einn beygluhelminginn á vöfflujárnið og þrýstið niður, haldið niðri í u.þ.b. eina mínútu og endurtakið við hinn beygluhelminginn
- Dreifið ávöxtunum yfir og í lokaskrefinu er síropinu hellt yfir
Berið fram með nóg af servíettum og njótið!