Fara í efni

Veldu þína uppáhalds Samsölu beyglu þegar hungrið sækir að

21.05.2024

Samsölu beyglur frá Myllunni hafa notið mikilla vinsælda síðan þær komu á markað og hafa þær verið ómissandi á matmálstímum landsmanna. Samsölu beyglurnar eru margra hluta vegna þægilegar þar sem það er hægt að eiga þær í frysti og grípa til þeirra og leyfa einfaldleikanum í eldhúsinu að ráða för.

Samsölu beyglur geta þjónað margs konar tilgangi. Þær eru tilvaldar í koma sér af stað á morgnanna, geta verið ljúffengar með góðu áleggi í hádeginu og eru ekki síður hentugar með kaffinu í eftirmiðdaginn eða sem góð kvöldmáltíð eða snarl að kvöldi til.

Skoðaðu úrvalið og gríptu með þér Samsölu beyglu í næstu innkaupaferð!

Fínar beyglur

Beyglur með kanil og rúsínum

Beyglur með Jalapeno og osti

Beyglur með hörfræjum, sesam og birki

Farið varlega við að skera beyglurnar í sundur

Við hvetjum fólk almennt að fara gætilega að því að skera frosnar vörur, hvort sem það eru beyglur eða önnur matvæli og eitt sem við viljum benda á þegar verið er að bjóða upp á beyglur er að nota ekki beitt áhald til að aðskilja helminga beyglunnar. Best er að þíða beygluna við stofuhita í 20 til 30 mínútur eða lengur áður en helmingar eru aðskildir og beyglan ristuð, það er einnig hægt að setja beygluna í örbylgjuofn á affrystistillingu í u.þ.b. 20 sekúndur (misjafnt eftir ofnum).

Af hverju eru beyglurnar ekki skornar alveg í gegn?

Þeirri spurningu hefur verið kastað fram hvort ekki sé hægt að skera beyglurnar alveg í gegn. Ef beyglurnar væru skornar alveg í gegn þyrfti að handpakka þeim í umbúðirnar og yrði það kostnaðarsamt sem myndi hækka verðið til neytenda. Vegna kostnaðarhagræðis er beyglunum vélpakkað í dag en vélin gæti ekki tryggt að toppur og botn raðist alltaf saman ef helmingarnir væru lausir.