Fara í efni

Gríptu með þér smáar Jólakökur með kremi!

11.11.2024

Við hjá Myllunni bjóðum upp á fjölbreytt úrval af brauðmeti og bakkelsi og finnst okkur frábært að geta komið fram með nýjungar til að mæta óskum neytenda Myllu vara.

Fyrst hóf Myllan sölu á smáum möndlukökum og í kjölfar þess var vöruúrvalið aukið til að mæta óskum neytenda sem höfðu áhuga á að fá fleiri gerðir af smáum kökum. Þá komu til sögunnar smáar súkkulaðikökur með súkkulaðiperlumsmáar Nutella-kökursmáar kökur með sítrónubragði og smáar gulrótarkökur.

Mundu eftir Myllu-smáar Jólakökur með kremi í næstu búðarferð!

Jólin eru handan við hornið og aðventan nálgast óðfluga. Þá er tilvalið að grípa með sér smáu Jólakökurnar. Um er að ræða dúnmjúka veislu af smáum Jólakökum með kremi. Smáu Jólakökurnar með kremi koma eflaust til með að færa þér jólin í sinni einföldustu mynd.

Eins og nafnið gefur til kynna eru kökurnar smáar, flauelsmjúkar og einstaklega bragðgóðar eins og allar hinar smáu kökurnar. Kökurnar eru alltaf fjórar saman í pakka svo auðvelt er að grípa þær með í ferðalagið, útivistina eða hafa við hönd í kaffi- eða nestistímanum. Þær eru fullkomnar beint í munninn.

Smáar Jólakökur með kremi eru fullkomnar við hvaða tilefni og kæta jafnt unga sem og aldna. Þú einfaldlega verður að smakka þær. Mundu bara að grípa þær með þér í næstu búðarferð!