Dagurinn sem margir hafa beðið eftir er runninn upp. Dagur Jólatertunnar er alltaf 24. október og loksins hægt að tryggja sér eina Jólatertu eða allar í helstu verslunum landsins.
Jólaterturnar eru handgerðar af einstakri alúð af bakarameisturum Myllunnar og koma í fjórum mismunandi gerðum, hver annarri ljúffengari. Allar terturnar eiga sína dyggu aðdáendur og koma þær í fjórum gerðum. Græna klassíska tertan er brún og með smjörkremi, þessi bláa er hvít og með sígildri rabarbarasultu, sú hvíta er einnig hvít en með gómsætri sveskjusultu og svo er það rauða tertan sem er brún og með smjörkremi og hindberjasultu.
Vinir Grænu Jólatertunnar
Fyrir þá sem elska jólaterturnar þá mælum við með Facebook-hópnum „Vinir Grænu Jólatertunnar“. Þó við hjá Myllunni segjum sjálf frá þá er þetta með skemmtilegri hópum sem þú finnur á veraldarvefnum, enda alltaf margt skemmtilegt um að vera og frábærar umræður með skemmtilegum jólatertu fróðleik. Taktu þátt í fjörinu, skráðu þig í hópinn og njóttu aðdraganda jólanna með gómsætri Jólatertu sem bráðnar í munninum.
Skoðaðu nánar um Jólaterturnar hér, smakkaðu þær allar og finndu út hver þín uppáhalds Myllu Jólaterta er!