Fara í efni

Brauðmeti Myllunnar er tilvalið í nestið

03.06.2024

Það er aldrei of oft á það minnst hversu mikilvægt saðsamt og gott nesti er og oft í önnum dagsins getur verið erfitt að finna tíma til að útbúa nesti. Sérstaklega að sumri til þegar viðrar vel og þig langar ekki að eyða miklum tíma í eldhúsinu, heldur njóta útiverunnar. Við hjá Myllunni bjóðum upp á gott vöruúrval sem er tilvalið fyrir nesti yfir daginn.

Pizzasnúðar og ostaslaufur frá Myllunni hafa löngum notið mikilla vinsælda enda eru þeir ómótstæðilega ljúffengir og einstaklega bragðgóðir. Pizzasnúðarnir og ostaslaufurnar frá Myllunni eru einkar handhægir, en líka frábær lausn þegar svengdin sækir að. Þess heldur sem það tekur enga stunda að snara þeim fram. Þeir eru afskaplegar vinsælir meðal yngstu kynslóðarinnar og eru mjög hentugir í nestisboxið hjá þeim á sumarnámskeiðinu.

Við hjá Myllunni vitum að það er alltaf vinsælt að fá eitthvað sætt með í nestisboxið hjá ungum sem öldnum. Kleinurnar frá Myllunni setja ávallt punktinn yfir i-ið í nestinu og slá alltaf í gegn.

Gríptu með þér poka af pizzasnúðum, ostaslaufum og kleinum frá Myllunni í næstu innkaupaferð ef þú vilt tryggja heimilisfólkinu gott nesti út í daginn.